03.05.2012 11:05

Fyrirlestur 3.maí

Fyrirlestur
Félagið stendur fyrir fyrirlestri í húsnæði Plastprents, Fosshálsi 17-25, fimmtudaginn 3.maí kl: 20.
Fjallað verður um sýningar og sýningarþjálfun á 
skemmtilegan og fræðandi hátt.
Fyrirlesturinn er bæði ættlaður byrjendum og lengra komnum.
Frítt er fyrir félagsmenn.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn Rex

26.03.2012 16:02

Úrslit

Jæja. Þá eru úrslit úr smáhundaflokkunum komin hér inn á síðuna.
Úrslit sýningar og myndir má sjá á www.rexhundar.is

Við óskum eigendum smáhundanna til hamingju með sinn árangur um helgina og vonumst til að sjá ykkur öll, og vonandi fleiri til, á næstu sýningu sem og öðrum viðburðum félagsins.

10.03.2012 09:50

Sýning 17.-18.mars

Það styttist í sýninguna sem verður næstu helgi og er dagskrá sýningar að finna í heild sinni á www.rexhundar.is

Smáhundategundirnar eru sýndar bæði á laugardeigi og sunnudeigi eftir tegundarhópum.

Þær smáhundategundir sem eru í heimilishundum eru sýndir kl. 12.00 - 12.10 á laugardeiginum 17.mars.

Papillon er sýndur á laugardeiginum 17.mars kl: 14.20 - 16.00
Coton De Tuléar er sýndur á laugardeignum 17.mars kl: 16.20 - 16.40


Áættluð úrslit í tegundarhópum er svo kl: 17.00

American Cocker Spaniel er sýndur á sunnudeiginum 18.mars kl: 15.10 - 15.15
Miniature Schnauzer Hvítur er sýndur á sunnudeiginum 18.mars kl: 15.15 - 15.20


Áættluð úrslit í tegundarhópum er svo kl: 15.55 og úrslit sýningar strax á eftir.


Við viljum koma vinsamlegum tilmælum bæði til sýnanda og gesti sýningar:

*Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta  með sína  hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma. 

*A.T.H.  Sýningartími getur breyst fyrirvaralítið.

*Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heisufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu.

Allir hundar verða að vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt

*Sýningartauminn.

*Kúkapoka. 
Við þrýfum upp eftir hundinn okkar og reynum að láta hann gera þarfir sínar úti.

*Nammi eða dót. Allt eftir því hvernig þið viljið verlauna hundinn.

*Og ekki vera í fötum sem eru í svipuðum lit og hundurinn.

*Sýnandi hunds þarf að vera á þrettánda aldursári fyrir utan unga sýnendur.

* Vinsamleg tilmæli til sýnanda: 
Á sýningarsvæðinu er einungist reiknað með einni manneskju á hund. Áhorfendapallarnir eru fyrir aðra gesti.

--------------------------------------------------------------------

Seinasta sýningarþjálfun er svo næsta þriðjudag kl. 19.30 í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

17.02.2012 18:58

Sýning, augnskoðun og fleira

Heilsufarskröfur, sýning og fleira

Gleðilegt ár kæru terriereigendur.

Árið hjá Rex fór af stað með krafti en haldinn var aðalfundur 16.janúar síðastliðinn.

Aðalfundur félagsins fór fram í húsnæði Plastprent í Reykjavík 16.janúar síðastliðinn. Dagskrá fundar voru venjuleg aðalfundarstörf og aðrar umræður sem.
Á aðalfundinum kom fram að líkt og félögin sem Rex er í samstarfi við er Chinese Crested sýndur saman óháð feldgerðinni.
Einnig var rætt um leifða liti í Miniature Pincher og líkt og samstarfs félögin var ákveðið að black og tan og red eru þeir litir sem eru leifðir samkvæmt staðli.
Chocolate & tan hefur enn ekki fengið samþykki en er það víst allt til skoðunar erlendis.
-------------------------------

Á stjórnarfundi sem haldinn var 1.febrúar síðast liðinn voru augnskoðanir samþykktar hjá félaginu fyrir nokkrar tegundir. Af terrier hundunum er Rat Terrier sá eini sem þarf að gangast undir þessa skoðun.

Frá og með 1.febrúar 2012 þarf að augnskoða nokkrar hundategundir fyrir ræktun.
Nánari upplýsingar er að finna undir heilsufarskröfum eða hér

Augnskoða þarf eftirtaldar tegundir, sem tilheyra smáhundadeild, fyrir pörun.
Shetland Sheepdog
Miniature Pinscher
Langhundur
Am. Cocker Spaniel
Cavalier
English Toy Spaniel
Papillon

-----------------------

Svo er bara að skella á sýning.

Skráning á sýninguna, sem haldinn verður 17.-18.mars 2012, er hafin.
Sýningin fer fram í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. 
Dómari á þessari sýningu er Jonny Anderson frá Írlandi.
Seinasti skráningardagur er 21.febrúar 2012.

Við minnum á keppni ungra sýnenda og heimilishunda sem fram fer á sýningunni.
Skráning fer fram á skrifstofu félagsins í síma                         533-1310             á opnunartíma og í gegnum netfangið rexhundar@rexhundar.is 
Eyðublöðin má nálgast hér fyrir neðan:


Sýningarþjálfanir eru dagana 6., 8. og 13. mars í Reiðhöll Gusts milli kl. 19:30 - 21:00

----------------------------------------------------------------------------------------

Auglýsingar í sýningarskrá

Félagsmönnum gefst kostur á að auglýsa í sýningarskrá félagsins, annaðhvort sína ræktun eða sína vöru.
Um er að ræða tvennskonar auglýsingar.
Án myndar: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.000kr.-
Með mynd: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.500kr.-

Upplýsingar á netfangi rexhundar@rexhundar.is

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------

Þeir sem áhuga hafa á að gefa bikara fyrir mars sýninguna vinsamlegast hafið samband við stjórn á netfangið rexhundar@rexhundar.is

--------------------------------------------------------------------------------------------------------

23.12.2011 17:20

Gleðileg jól



Kæru félagar.
Hundaræktunarfélagið Rex sendir félagsmönnum sínum 
bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju ári.

---------------

Nýtt ár mun byrja með krafti en aðalfundur félagsins verður haldinn 16.janúar kl. 20 í Plastprent húsinu að Fosshálsi 17-25 í Reykjavík.
Dagskrá fundar:
Venjuleg aðalfundar störf.
Aðrar umræður.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta á aðalfundinn en hann er einnig góður vettfangur til að viðra ykkar hugmyndir í öðrum umræðum.

Í mars er svo vorsýning félagsins og opnast fyrir skráningu strax eftir jólafrí skrifstofunnar. Sýningin verður helgina 17. og 18. mars.

Smáhundadeild Rex

28.10.2011 19:44

Úrslit og Papillon got

Úrslit úr smáhunda flokkum eru komin hér inn undir sýningar. Það tók þó nokkurn tíma að koma þessu inn og viljum við biðjast afsökunnar á því.
Það var Papillon sem var besti hundur tegundar, Heimadals Pjakkur og óskum við eiganda hans innilega til hamingju með árangurinn. 
Nokkrir smáhundar kláruðu svo meistaratitil á sýningunni:
Papillon tíkin, ISCH Dalsmynnis Teresa varð alþjóðlegur meistari.
Coton De Tuléar rakkinn, Skelja Bjartur varð íslenskur meistari.
Við viljum nota tækifærið og óska ykkur öllum til hamingju með árangur ykkar hunda á sýningunni.

Úrslit sýningar eru svo að finna á heimasíðu Rex, www.rexhundar.is 

---------------------------------------------------------------------------------------------------------
2 hvolpar, báðir rakkar undan Kósý Coco Chanel og Jaka Þór litu dagsins ljós 29.8.2011.
Áhugasamir geta haft samband í síma 845-7815

08.10.2011 16:22

Dagskrá

Dagskrá sýningar er komin á heimasíðu félagsins, www.rexhundar.is og má sjá hana þar í heild.

Smáhundarnir eru sýndir bæði á laugardeiginum 15.október og sunnudeiginum 16.október

Laugardagur 15.október

Heimilishundar     Kl. 12.00 - 12.10
Papillon               Kl. 13.50 - 15.05
Coton de Tuléar   Kl. 15.15 - 15.30
Cavalier              Kl. 15.30 - 15.35

Sunnudagur 16.október

Beagle                 Kl. 12.30 - 12.35



Við viljum þó koma vinsamlegum tilmælum til sýnenda og gesta sýningarinnar.

*Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta  með sína  hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma. 

*A.T.H.  Sýningartími getur breyst fyrirvaralítið.

*Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heisufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu.

Allir hundar verða að vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt

*Sýningartauminn.

*Kúkapoka. 
Við þrýfum upp eftir hundinn okkar og reynum að láta hann gera þarfir sínar úti.

*Nammi eða dót. Allt eftir því hvernig þið viljið verlauna hundinn.

*Og ekki vera í fötum sem eru í svipuðum lit og hundurinn.

*Sýnandi hunds þarf að vera á þrettánda aldursári fyrir utan unga sýnendur.

* Vinsamleg tilmæli til sýnanda: 
Á sýningarsvæðinu er einungist reiknað með einni manneskju á hund. Áhorfendapallarnir eru fyrir aðra gesti.

01.10.2011 22:57

Sýningarþjálfun

Jæja, kæru félagsmenn.
Núna er ekki nema hálfur mánuður í sýningu og hefjast sýningarþjálfanirnar núna eftir helgi. Æfingarnar eru þrjár og verða haldnar í Reiðhöll Gusts í Kópavogi og hefjast allar kl. 19.30.
Fyrsta æfing er þriðjudaginn 4.október.
Önnur æfing er miðvikudaginn 5.október
og sú síðasta er þriðjudaginn 11.október.

Fyrir þau ykkar sem eruð að stíga ykkar fyrstu skref í sýningarhringnum mælum við eindregið með að þið mætið á fyrstu þjálfun og ákveðið svo hvort þið komið á hinar eftir það emoticon
Á æfingunum er farið yfir hvernig taumurinn skal vera, uppstilling og það helsta sem dómarinn gæti beðið ykkur um að gera ásamt því að venja hundinn við borð, ef þarf, og láta kíkja á tennur og skoða hann. 
Gott er líka að googla og skoða myndbönd frá sýningum af ykkar tegund emoticon
Við hlökkum til að sjá ykkur næsta þriðjudag.

31.08.2011 17:24

Hver að verða síðastur

Það styttist óðum í seinasta skráningardag fyrir haust sýningu félagsins sem haldinn verður 15.-16.október í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Seinasti skráningardagur er 6.september!

Lengri opnunartími á skrifstofunni er næsta þriðjudag, 6.september, frá kl. 18 - 20.
Dómari á þessari sýningu er Nigel Marsh frá Írlandi. 

Tekið er á móti skráningum á skrifstofu félagsins að Dugguvogi 6, 2.hæð og í síma 533-1310 á skrifstofutíma. Einnig er hægt að skrá beint í gegnum heimasíðu félagsins. Nánar áwww.rexhundar.is
Einnig er hægt að skrá upp á gamla mátann með að fylla út eyðublöð og senda á rexhundar@rexhundar.is.
Ekki er tekið á móti skráningum nema greiðsla hafi borist. Skráning er bindandi.
Þeir sem kjósa að skrá á sýninguna í gegnum síma, netfang eða heimasíðu félagsins geta lagt sýningargjöldin inn á reikning félagsins:

0135-26-1230 kennitala: 570305-1230

Vert er að taka fram að á sýningunni fer fram keppni ungra sýnenda og heimilishunda og þarf að skrá í þessa flokka sér.
Keppni ungra sýnenda er skipt í tvo aldursflokka. Yngri flokkur er fyrir börn á aldrinum 5 -10 ára og eldri flokkur fyrir börn á aldrinum 11 - 16 ára.
Tilgangur keppni ungra sýnenda er að dæma samband hunds og sýnenda og hvernig sýnandi ber sig að með hundinn.

Félagsmönnum Hundaræktunarfélagsins Rex stendur einnig til boða að auglýsa í sýningarskrá.
Um er að ræða einfalda auglýsingu.


Ræktunarnafn, Tegund

Simi

Heimasíða,netfang

-------------------------------

Mynd

Ræktunarnafn, tegund

Sími

Heimasíða, netfang


Verð án myndar: 3000kr.-
Verð með mynd: 3500kr.-
Auglýsing skal sendast á rexhundar@rexhundar.is
ATH að mynd skal vera í sem bestri upplausn.
Fyrir annarskonar auglýsingar bendum við á að hafa samband við stjórn félagsins í gegnum netfang rexhundar@rexhundar.is eða í síma stjórnarmanna.

Vert er að taka fram að stjórn félagsins óskar eftir sjálfboðaliðum til að taka að sér starf innan sýningarstjórnar félagsins fyrir komandi sýningu. Áhuga samir geta sent póst á rexhundar@rexhundar.is 

Við hlökkum til að sjá ykkur á sýningunni.

31.07.2011 17:50

Coton got. Blómstranid dagar og næsta sýning

Nýtt 5 hvolpa Coton got leit dagsins ljós 15.júlí síðastliðinn hjá Skeljaræktun. Foreldrar eru Casmier Bandith og Casmier Bellis en úr seinasta goti hjá þeim er meðal annars Skelja Lukka, sem varð besti hundur sýningar á haustsýningu 2010, og Skelja Bjartur, sem var besti hundur tegundar og annar í tegundarhóp 9 á vorsýningu 2011.
Tvær tíkur eru nú þegar fráteknar úr þessu goti. Upplýsingar veitir ræktandi í síma 892-7966
-------------------------------------------------

Dagana 11. - 14. ágúst verður bæjarhátíðin Blómstrandi dagar haldnir í Hveragerði.
Líkt og undanfarin ár mun Hundaræktunarfélagið Rex vera á staðnum á
laugardeginum 13.ágúst frá kl. 13 - 16 .
Í ár ætlum við að hafa tegundarkynningu og eru áhugasamir félagsmenn beðnir um að senda okkur tölvupóst með upplýsingum um hvaða hundakyn þeir eru með og hvaða tími hentar best á netfangið sigrun@rexhundar.is

Í ár munum við líka hafa smá kynningu á hundafiminni. Vanir hundar munu þá fara í brautina en einnig stendur óvönum til boða að prufa.

Hlökkum til að heyra í ykkur.
Stjórn Rex
---------------------------------------------------------------------------------

Skráning er hafin á haust sýningu félagsins sem fram fer 15. - 16.október í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. Komið er nýtt skráningarform sem er fylt út á netinu. Allar frekari upplýsingar á síðu félagsins, www.rexhundar.is 
  • 1
Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 55966
Samtals gestir: 19012
Tölur uppfærðar: 24.5.2012 13:55:02